Kjarakönnun FVH

Félag viðskipta- og hagfræðinga hefur framkvæmt kjarakannanir reglulega frá 1997. Tilgangur kjarakönnunar er að gefa félagsmönnum FVH ítarlegar upplýsingar um kjör, áhrif menntunar og annarra þátta í starfsumhverfi þeirra. 

Tilgangur reiknivélarinnar er að gefa félagsmönnum færi á að fá aðgang að áætluðum meðallaunum sem eru byggð á gögnum úr kjarakönnun FVH sem framkvæmd er annað hvert ár.
Með reiknivélinni er hægt að sjá á einfaldan og fljótlegan hátt áætluð meðallaun viðskipta- og hagfræðinga fyrir allar mögulegar samsetningar á bakgrunnsbreytur.

Kjarakönnun FVH 2024

Kjarakönnun FVH 2024 var framkvæmd af EMC markaðsrannsóknum dagana 23. febrúar til 15. mars 2024. 

Miðgildi launa karla er 1.175.000 kr. en kvenna 988.534 kr.

Heildarlaun hækka með aukinni menntun, auknum mannaforráðum og starfsaldri.

Screenshot 2024-04-09 at 16.07.18

Kjarakönnun FVH 2022

Kjarakönnun FVH 2022 var framkvæmd af Prósent daganna 9. febrúar til 21. mars 2022. 

Miðgildi launa karla er 1.100.000 kr. en kvenna 929.635 kr.

Heildarlaun hækka með aukinni menntun, auknum mannaforráðum og starfsaldri.

bakgrunnur-slider-vidburdir

Kjarakönnun FVH 2019

Samkvæmt niðurstöðum er miðgildi heildarlauna viðskipta- og hagfræðinga 989.000 kr. en meðaltal heildarlauna er 1.094.000 kr. Þar sem meðaltal launa er hærra en miðgildið er dreifingin jákvætt skekkt sem þýðir að meirihluti einstaklinga fær lægri laun en meðallaun. Vikmörk meðaltals heildarlauna eru á bilinu 1.060.000 kr. til 1.129.000 kr. og er hægt að segja með 95% vissu að raunverulegt meðaltal þýðisins liggi innan þessara marka. Staðalfrávik heildarlauna er 513.000 kr. og er því nokkur dreifing á heildarlaunum.

Kjarakönnun FVH 2017

Samkvæmt niðurstöðum er miðgildi heildarlauna viðskipta- og hagfræðinga 800.000 kr. en meðaltal heildarlauna er 881.000 kr. Þar sem meðaltal launa er hærra en miðgildið er dreifingin jákvætt skekkt sem þýðir að meirihluti einstaklinga fær lægri laun en meðallaun. Vikmörk meðaltals heildarlauna eru á bilinu 855.000 kr. til 906.000 kr. og er hægt að segja með 95% vissu að raunverulegt meðaltal þýðisins liggi innan þessara marka. Staðalfrávik heildarlauna er 388.000 kr. og er því nokkur dreifing á heildarlaunum.

Kjarakönnun FVH 2015

Kjarakönnun FVH 2015 var framkvæmd af PWC, 28. maí -13. september 2015.

Æðstu stjórnendur eru launahæstir með 1.125.000 í laun , framkvæmdastjórar sviða koma næstir með 1.100.000 kr. og þar næst forstöðumenn 1.050.000 kr.  Miðgildi heildarlauna meðal viðskipta- og hagfræðinga var 777.000 kr., en meðaltalið var 860.000 kr. 

Heildarlaun hækka með aukinni menntun og starfsaldri.

Kjarakönnun FVH 2013

Kjarakönnun FVH 2013 var framkvæmd af PWC, 3. -26. júní 2013.

Löggiltir endurskoðendur eru launahæstir með 1.000.000 í laun , framkvæmdastjórar sviða koma næstir með 956.000 kr. og þar næst æðstu stjórnendur með  900.000 kr.  Miðgildi heildarlauna meðal viðskipta- og hagfræðinga var 708.000 kr., en meðaltalið var 793.000 kr. 

Heildarlaun hækka með aukinni menntun og starfsaldri.