Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga hélt mjög áhugaverðan og vel sóttan fund um fjárfestingar í ferðaþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins 29.janúar sl. Fundurinn var haldinn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri og var húsfyllir á fundinum, rétt tæplega 120 manns.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar opnaði fundinn. Á eftir honum héldu erindi; Hörður Sigurbjarnarson, stofnandi Norðursiglingar á Húsavík en hans erindi bar yfirskriftina Norðursigling: vettvangur strandmenningar á Íslandi. Á eftir honum ræddi Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa um fjárfestingar í ferðþjónustu og hvort kæmi á undan, eggið eða hænan. Síðust til að taka til máls var svo Arna Björg Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Óbyggðaseturs Íslands í Fljótsdal en hún sagði þar frá uppbyggingu Óbyggðasetursins og kallaðist erindi „Að fortíð skal hyggja ef frumlegt skal byggja“.
Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóri Íslandsbanka og stjórnarmeðlimur FVH stjórnaði fundinum.
Hér má sjá myndir frá fundinum.