Vel smurð vél eða víraflækja? – Umbætur á skattkerfinu og viðhorf stjórnmálaflokkanna
Í fyrramálið, fimmtudaginn 29. september, stendur Viðskiptaráð, ásamt Félagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga (FVH), fyrir morgunverðarfundi um íslenska skattkerfið.
Kynntar verða nýjar tillögur verkefnisstjórnar um breytingar og umbætur á skattkerfinu og fulltrúar helstu stjórnmálaflokka segja frá afstöðu sinni til mögulegra breytinga.
Umbótatillögur kynntar
Daði Már Kristófersson, formaður verkefnisstjórnar um breytingar og umbætur á skattkerfinu, mun kynna tillögur hennar sem birtar voru á dögunum.
Viðhorf stjórnmálaflokkanna
Í framhaldinu munu fulltrúar þeirra stjórnmálaflokka sem sæti hafa á alþingi eða mælast yfir 5% í skoðanakönnunum taka þátt í pallborðsumræðum um sýn þeirra á skattkerfið og mögulegar breytingar eftir kosningar:
- Bjarni Benediktsson frá Sjálfstæðisflokki
- Katrín Jakobsdóttir frá Vinsti grænum
- Oddný G. Harðardóttir frá Samfylkingu
- Óttarr Proppé frá Bjartri framtíð
- Sigurður Ingi Jóhannsson frá Framsóknarflokki
- Smári McCarthy frá Pírötum
- Þorsteinn Víglundsson frá Viðreisn
Fundurinn fer fram kl. 8.30-10.00 á Grand Hótel Reykjavík og er morgunverður í boði frá kl. 8.15.
Þátttökugjald er 2.900 kr. fyrir félaga í Viðskiptaráði eða FVH en 4.900 kr. fyrir aðra. Morgunverður er innifalinn í verði fundarins.