Íslenski þekkingardagurinn árið 2015 verður haldinn undir yfirskriftinni „Nýsköpun í auðlindanýtingu: Lykillinn að betri framtíð?“
Á deginum verður fjallað um tækifæri og verðmætasköpun samhliða nýsköpun í auðlindanýtingu. Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa þróað starfsemi sína í kringum nýtingu á ýmsum afurðum sem hingað til hafa ekki þótt verðmæti en sífellt er verið að bæta nýtingu á þeim efnivið sem fellur til við hefðbundna framleiðslu. Skapar þessi nýja auðlindanýting meiri tækifæri en hefðbundin auðlindanýting og eykur hún verðmætasköpunina í samfélaginu?
Dagskráin er eftirfarandi:
- Dr. Marcello Graziano, einn helsti sérfræðingur Skotlands í orku- og auðlindanýtingu við MERIKA, rannsóknar- og nýsköpunarmiðstöð í sjávarorku – „The MERIKA Project: unlocking the power potential of the North Atlantic through a new paradigm of ecological and economic development„.
- Caroline Dale Ditlev-Simonsen, fremsti fræðimaður Noregs á sviði samfélagslegrar ábyrgðar – „Corporate Social Responsibility – What, why and how?“
- Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku – „Auðlindagarður HS Orku“.
- Pallborðsumræður verða í lokin með spurningum úr sal. Þátttakendur í umræðunum eru:
- Björn L. Örvar – framkvæmdastjóri rannsókna- og vöruþróunarsviðs ORF Líftækni
- Margrét Arnardóttir – verkefnastjóri vindorku, Landsvirkjun
- Guðmundur Fertram Sigurjónsson – forstjóri Kerecis
- Halldór Óskar Sigurðsson – framkvæmdastjóri Stolt Sea Farm
- Ásgeir Margeirsson – forstjóri HS Orku
Ráðstefnustjóri er Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Forseti Ísland, Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir í kjölfarið á ráðstefnunni Íslensku þekkingarverðlaunin og heiðrar viðskiptafræðing eða hagfræðing ársins.
Deginum lýkur síðan með samkomu undir ljúfum tónum og léttum veitingum. Styrktaraðilar Íslenska þekkingardagsins eru KPMG, Háskólinn í Reykjavík, Íslandsbanki og Endurmenntun Háskóla Íslands.
Íslenski þekkingardagurinn fer fram föstudaginn 20. mars frá kl. 14.00-16.30 á Grand hótel. Þátttökugjald 3.950 kr. fyrir félagsmenn FVH og 7.900 kr. fyrir aðra.
Skráningu lauk fimmtudaginn 19. mars. Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við fvh@fvh.is