Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga auglýsir eftir framkvæmdastjóra í 50% stöðu til vors með möguleika á áframhaldandi starfi næsta haust. Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga er fagfélag háskólamenntaðs fólks á sviði viðskiptafræða og hagfræða.
Framkvæmdastjóri sinnir daglegum rekstri félagsins og skipuleggur viðburði í samstarfi við stjórn félagsins.
Hæfniskröfur:
- Að hafa lokið menntun í viðskiptafræði eða hagfræði eða að vera að ljúka námi í þessum fögum
- Skipulagshæfileikar
- Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
- Eiga auðvelt með að vinna með fólki
- Góð tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til 11. janúar og umsóknir og ferilskrá má senda á fvh@fvh.is