Fjórir nýir í stjórn FVH

Ný stjórn Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (FVH) hefur verið kjörin fyrir starfsárið 2014-2015. Fjórir nýir tóku sæti í stjórninni í stað þeirra sem gengu úr stjórn en kosið er í embætti stjórnar á tveggja ára fresti.

Félagar FVH eru yfir eitt þúsund talsins og hefur fjölgað umtalsvert á undanförnum árum. Á síðasta starfsári sóttu nokkur hundruð manns viðburði á vegum félagins en m.a. voru haldnir hádegisverðarfundir um afnám hafta og um þau tækifæri sem felast í olíuleit. Einnig framkvæmdi félagið kjarakönnun sem vakti mikla athygli og var kynnt á opnum fundi.

Stjórn FVH fyrir komandi starfsár er þannig skipuð:

Formaður stjórnar: Dögg Hjaltalín

Varaformaður og fulltrúi kjaranefndar: Birgir Már Guðmundsson

Gjaldkeri: Magnús Erlendsson

Formaður ritnefndar: Edda Hermannsdóttir

Formaður fræðslunefndar: Auðbjörg Ólafsdóttir

Meðstjórnandi og fulltrúi nýliða: Hjalti Rögnvaldsson

Fulltrúi hagfræðinga: Sigríður Mogensen

Fulltrúi landsbyggðar: Valdimar Halldórsson

Fulltrúi samstarfsfyrirtækis:Sveinn Agnarsson

Á meðfylgjandi mynd eru: Hjalti Rögnvaldsson, Dögg Hjaltalín, Sveinn Agnarsson, Birgir Már Guðmundsson, Edda Hermannsdóttir, Sigríður Mogensen og Magnús Erlendsson.Stjórn FVH 2014-2015 fyrir vef