FVH hefur valið Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, sem viðskiptafræðing ársins 2013.
Við valið horfði dómnefnd meðal annars til þess að Birna hefur leitt uppbyggingu Íslandsbanka frá endurreisn bankans í lok árs 2008. Mikið hefur mætt á íslenskum bönkunum sem hafa orðið að sníða stakk sinn að gjörbreyttum rekstri, minnka umfang starfseminnar, koma að endurreisn fjölmargra fyrirtækja, verða hluthafar í nokkrum fyrirtækjum í óskyldum rekstri, endurvekja tiltrú á íslenskum verðbréfamarkaði, endurútreikna gengislán, opna á ný fyrir erlendar lántökur íslenskra fjármálafyrirtækja og aðstoða fyrirtæki og einstaklinga við að endurskipuleggja sín fjármál. Það eru því ærin verkefni sem hafa verið á borðinu hjá Birnu undanfarin ár.
Birna hefur verið góður fyrirliði þess liðs sem komið hefur að uppbyggingu Íslandsbanka. Góðir stjórnunarhæfileikar og leiðtogahæfni Birnu hafa komið vel í ljós á þessum erfiðu tímum og ágætur starfsandi hefur myndast innan bankans. Kannanir sýna ítrekað að bæði einstaklingar og fyrirtæki, telja bankann vera í fararbroddi og vera leiðandi í þjónustu í dag. Afkoma bankans hefur verið góð og hefur fyrirtækið uppskorið árangur þeirra miklu og góðu vinnu starfsmanna sem lögð hefur verið að mörkum á undanförnum árum.
Það er mat dómnefndar að Birna Einarsdóttir sé vel að því komin að vera útnefnd viðskiptafræðingur ársins 2013.
Við val á viðskiptafræðingi eða hagfræðingi ársins er leitað eftir áliti félagsmanna FVH en endanleg ákvörðun er í höndum dómnefndar. Í dómnefnd sátu Örn Valdimarsson, formaður FVH, Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá VÍS, Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, Margrét Guðmundsdóttir forstjóri Icepharma og Jafet Ólafsson, viðskiptafræðingur.