Undanfarin ár hefur umræða um samhliða rekstur fjárfestingabanka- og viðskiptabankastarfsemi verið viðvarandi í samfélaginu. Sennilega má þó marka nýtt upphaf hennar eftir bankahrunið þegar þáverandi efnahags og viðskiptaráðherra ræddi í fyrsta sinn, árið 2011, opinberlega um aðskilnaðinn í sambandi við breytingar á starfsheimildum innlánsstofnana.
Þingmál þessa efnis hafa þónokkrum sinnum birst á vettvangi Alþingis í einni eða annarri mynd en hafa þó aldrei náð fram að ganga. Í september sl. lögðu svo átta þingmenn úr röðum stjórnarandstöðunnar fram tillögu til þingsályktunar um aðskilnað fjárfestingabanka- og viðskiptabankastarfsemi og er þetta málefni því enn einu sinni komið upp á borð Alþingis.
Til að ræða þetta áhugaverða mál hefur Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga fengið Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands og efnahagsráðgjafa Virðingar, til liðs við sig til að kryfja málið á hádegisverðarfundi þann 17.nóvember nk. á Fosshóteli Reykjavík. Ásgeir mun hefja fundinn á erindi um bankakerfið, m.a. um kosti og galla aðskilnaðar á viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi. Að erindinu loknu verða pallborðsumræður þar sem aðilar úr viðskiptalífinu og stjórnmálum munu bregðast við framsögu Ásgeirs og taka á efni fundarins frá ólíkum sjónarhólum. Leitast verður við að gefa fundargestum góða innsýn í efnið ásamt því að svara stóru spurningunni um það hvort aðskilja ætti viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi.
Dagskrá fundarins:
Guðrún Ragnarsdóttir, meðeigandi og ráðgjafi hjá Strategíu, opnar og stýrir fundinum og pallborðsumræðum.
Er skilnaður til bóta? – Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands og efnahagsráðgjafi Virðingar, heldur erindi um bankakerfið.
Pallborðsumræður:
Tryggvi Pálsson – Stjórnarformaður Landsbankans
Frosti Sigurjónsson – Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis
Dr.Þóranna Jónsdóttir – Deildarforseti viðskiptadeildar HR
Hannes F. Hrólfsson – Forstjóri Virðingar
Spurningar úr sal
Fundurinn fer fram á Fosshótel Reykjavík, þriðjudaginn 17. nóvember, milli 12:00-13:05. Við viljum benda fundargestum á að nýta sér bílastæðahús á Höfðatorgi en þaðan er innangengt inn á Fosshótel Reykjavík. Þátttökugjald er 3.950 kr. fyrir félagsmenn FVH og 5.950 kr. fyrir aðra og er hádegisverður innifalinn í verði fundarins.
Skráningu hefur verið lokað.
Nánari upplýsingar fást hjá fvh@fvh.is