FVH í samstarfi við Opna háskóla í HR stendur fyrir hádegisverðarfundi þriðjudaginn 11. mars kl. 12.00 til 13.15 í Opna háskólanum í HR.
Fræðslunefnd Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga valdi úr frábæru úrvali námskeiða Opna háskólans í HR framúrskarandi námskeið fyrir félagsmenn. Hver fyrirlestur er 15 mínútna „Executive Summary“ eða hröð samantekt fyrir stjórnendur og sérfræðinga.
Dagskráin er eftirfarandi:
1. Markþjálfun (Executive Coaching) – Lára Óskarsdóttir, ACC stjórnendamarkþjálfi hjá Vendum.
2. Árangursrík samskipti: Hlutverk stjórnenda – Sigríður Hulda Jónsdóttir
3. Líkanagerð fyrir rekstraráætlanir, arðsemismat og verðmat & Reiknitækni í rekstri fyrirtækja – Páll Jensson, prófessor í rekstrarverkfræði, forstöðumaður fjármála- og rekstrarverkfræðisviðs við tækni- og verkfræðideild HR.
4. Arðsemisgreining – Dr. Páll Ríkharðsson, forstöðumaður meistaranáms á sviði fjármála og endurskoðunar við viðskiptadeild HR.
5. Nýjungar í meistaranámi við viðskiptadeild HR – Dr. Þóranna Jónsdóttir, deildarforseti viðskiptadeildar HR.
Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn FVH.
Félag viðskipta og hagfræðinga í samstarfi við Opna háskólann í HR
Bókaðu þig strax !